Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000

Skilmálar

Afhending og áhættuskipti

Afgreiðslutími pantana er 1-3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða að varan verði endurgreidd sé þess óskað.

Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. 

Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur sannanlega innt greiðslu af hendi. Eik ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhent kaupanda.

Sæki kaupandi vöru ekki á tilsettum tíma og það má rekja til kaupanda eða atvika sem hann ber ábyrgð á, flyst áhættan yfir á kaupanda þegar hlutur er honum til reiðu á umsömdum afhendingarstað. 

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytanda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.

Greiðsla og sendingarkostnaður

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum.

Ef greitt er með kredit-, debetkortum í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor er korthafi fluttur á viðeigandi vef þegar kemur að greiðslu. Greiðslur með kredit- og debetkortum eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi Valitor þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Eik tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Sendingakostnaður miðast við verðskrá póstsins og við reynum eftir fremsta megni að koma sendingum í póst samdægurs. 

Verð

Eik áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Vöruskil

Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Eik.

Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á brandis@brandis.is en getur einnig nýtt sér staðlað uppsagnareyðublað sem finna má hér: https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/435-2016

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á brandis@brandis.is með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Öll umferð um eikverzlun.is er dulkóðuð yfir örugga tengingu (HTTPS). 

Fyrirvari (lög og varnarþing)

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila skal bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Dugir það ekki verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á brandis@brandis.is

Vefverslunin EIK er rekin af Brandís ehf., lögheimili Sólarsalir 4, 201 Kópavogi, kt. 571014-1300, VSK númer 119005.